Hugdrif
ENIS

Óháð ráðgjöf fyrir stjórnendur í stórum breytingum

Umbreytingin er samþykkt.
Nú þarf hún að skila.

Kerfin eiga að styðja starfsemina, ekki öfugt. Til þess þarf fyrst að skilja hvernig starfsemin vinnur í raun og hvað hún þarf. Það skref gleymist oft og þá skila kerfin ekki því sem lagt var upp með. Hugdrif stendur ykkar megin við borðið, frá stefnu til innleiðingar.

Fáðu ókeypis stöðumat Kannist þið við þetta?

Fyrsta samtalið er ókeypis: 30–60 mínútur í trúnaði og hreinskilið svar um hvort ég geti hjálpað.

Þrír staðir þar sem góð stefna tapast

Kerfið var valið á undan verklaginu

Innleiðingin verður þá að röð ákvarðana um hvernig fyrirtækið á að vinna, teknar af þeim sem stilla kerfið en ekki þeim sem bera ábyrgð á rekstrinum.

Sannleikurinn er til í mörgum útgáfum

Stjórnendur sjá misræmi í upplýsingum frá ólíkum kerfum, mánaðarlokin kalla á handavinnu og gervigreind gefur ólík svör við sömu spurningum eftir samhengi.

Enginn ber ábyrgð á heildinni

Hver aðili við borðið ber ábyrgð á sínum hluta: leyfum, innleiðingu eða rekstri. Enginn hefur það hlutverk að gæta heildarinnar fyrir hönd starfseminnar.

Ekkert af þessu er tæknivandi. Þetta eru ákvarðanir sem þarf að taka áður en tæknin kemur til og það er vinnan sem ég sinni.

Kannist þið við stöðuna?

Þetta eru algengar aðstæður þar sem óháð sýn Hugdrifs skilar mestu.

Stór kerfisákvörðun eða útboð framundan

Kröfurnar byggja oft á núverandi kerfi frekar en þörfum starfseminnar og ákvörðunin verður ekki aftur tekin eftir undirskrift.

Kerfisval, útboð og rýni
Sameining eða samruni

Hver eining vinnur á sinn hátt og enginn hefur ákveðið hvaða verklag verður staðallinn.

Heildarskipulag og verkferli
Stjórnin spyr um gervigreind

Tilraunir lofa góðu í kynningu, en óljóst er hvar á að beita gervigreind, í hvaða tilgangi og hvað er tilbúið fyrir rekstur.

Viðbúnaður fyrir gervigreind og erindreka
Verkefni sem skilar ekki

Tímalínan lengist, kostnaðurinn vex og tæknilegu skýringarnar eru hættar að sannfæra.

Kerfisval, útboð og rýni
Gögnin stemma ekki

Sami hluturinn er skráður á ólíka vegu í ólíkum kerfum og enginn veit hvaða útgáfa er rétt.

Gögn og upplýsingaarkitektúr
Þörf fyrir reyndan arkitekt, en ekki í fullu starfi

Stórar ákvarðanir koma reglulega upp, en umfangið réttlætir ekki fastráðinn yfirarkitekt.

Yfirarkitekt í hlutastarfi

Samstarfsform

Samtal

30–60 mínútur, án kostnaðar. Þið segið frá stöðunni; ég segi hreinskilnislega hvort ég sé rétti aðilinn.

Álit

Einn til tveir dagar. Skrifleg sýn á þau tvö eða þrjú atriði sem myndu breyta mestu.

Verkefni eða viðvarandi samstarf

Afmarkað verk með skýrri afurð, eða föst viðvera yfir lengri tíma.

Nánar um samstarfsform

Ykkar megin við borðið

Hugdrif selur engin hugbúnaðarleyfi, tekur ekki að sér innleiðingu og hefur engan vettvang að verja. Það þýðir ekki að ég hafi engar skoðanir á tækni; ég hef starfað í 25 ár við viðskiptahugbúnað og segi ykkur umbúðalaust hvað ég myndi velja í ykkar sporum. Svarið fer ekki eftir því hvað ég fæ greitt fyrir.

Um Hugdrif

Er stór ákvörðun framundan eða verkefni í sjálfheldu?

Hvort sem þið eruð að undirbúa nýtt kerfisútboð, móta gervigreindarstefnu eða þarfnast óháðs stöðumats á flóknum lausnaarkitektúr, þá kostar fyrsta samtalið ekkert.

Tökum 30–60 mínútna stöðumat og ég segi ykkur hreinskilnislega hvort ég sé rétti aðilinn til að hjálpa og ef ekki, hvaða aðilar væru betur til þess fallnir.

Fáðu ókeypis stöðumat